Héraðsfundur Austurlandsprófastsdæmis fer fram í Kirkjumiðstöð Austurlands við Eiðavatn, laugardaginn 29.maí kl. 11-17.
Á dagskrá eru hefðbundin störf héraðsfundar og kosningar í stjórnir og ráð.
Öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt.
Fundargestum er boðið í hádegismat og kaffi, vinsamlegast tilkynnið um þátttöku til starfsmanns prófastsdæmisins fyrir 26.maí nk. á netfangið berglind.honnudottir@kirkjan.is