Seyðisfjarðarkirkja
Bláa kirkjan verður bleik í október í tilefni af árvekniátaki um krabbamein. Klæðumst bleiku og berum slaufuna.
Sunnudaginn 20. október
Bleikur sunnudagaskóli kl 11, söngur, kirkjubrúður og biblíusaga.
Kl. 20 er kvöldmessa með bleiku þema. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng og organisti og kórstjóri er Hlín Pétursdóttir Behrens. Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Eftir messu er bleikt messukaffi í safnaðarheimilinu. Frjáls framlög renna til Krabbameinsfélags Austurlands.
Egilsstaðakirkja
Sunnudagaskóli alla sunnudaga kl. 10:30
Hádegisbæn í Safnaðarheimili alla þriðjudaga kl. 12:00
Biblíuleshópur byrjar 16. október og mun hittast á miðvikudögum kl. 17:00 í Safnaðarheimili.