Bakkagerðiskirkja
Á sjómannadaginn, 1. júní kl. 11 verður guðsþjónusta við höfnina (ef veður leyfir, annars inni í kirkju). Bakkasystur leiða okkur í söng. Jón Ólafur Sigurðsson er organisti, prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Seyðisfjarðarkirkja
Á sjómannadaginn, 1. júní verður guðsþjónusta kl. 20.00. Einsöng flytur Sigurður Jónsson. Kór Seyðisfjarðarkirkju  leiðir okkur í söng. Hlín Pétursdóttir Behrens er organisti, prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.

Vopnafjarðarkirkja
Messa sjómannadaginn 1. júní kl. 14
Kirkjukórinn leiðir söng við undirleik Baldvins Eyjólfssonar.
Séra Örn Bárður Jónsson messar og þjónar fyrir altari og mun ræða sjómennsku, samfélag og trú út frá boðskap kirkjunnar.
Að messu lokinni verður gengið að minnisvarðanum með blómakrans.

Norðfjarðarkirkja
Hátíðarguðsþjónusta á Sjómannadag, sunnudaginn 1.júní kl. 14:00
séra Benjamín Hrafn Böðvarsson þjónar fyrir altari.
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, flytur erindi.
Kór Norðfjarðarkirkju syngur undir stjórn Kaido Tani.
Andri Snær Þorsteinsson flytur harmonikkutóna.
Sjómenn heiðraðir í messunni.
Eftir stundina verður blómsveigur borinn í kirkjugarðinn til minningar um látna sjómenn.
Áskirkja í Fellum
Fermingarmessa sunnudaginn 1. júní kl. 11.
Kirkjukór Ásóknar syngur undir stjórn Drífu Sigurðardóttir.
Séra Jarþrúður Árnadóttir þjónar fyrir altari