Héraðsfundur Austurlandsprófastsdæmis fer fram í Kirkjumiðstöð Austurlands við Eiðavatn, sunnudaginn 24. apríl kl 11-17.00.
Á dagskrá eru hefðbundin störf héraðsfundar og kosningar í stjórnir og ráð.
Öllum áhugamönnum innan þjóðkirkjunnar um kirkjuleg málefni er heimilt að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt.
Fundargestum er boðið í hádegismat og kaffi, vinsamlegast tilkynnið um þátttöku til starfsmanns prófastsdæmisins fyrir 21. apríl nk. á netfangið berglind.honnudottir@kirkjan.is