Hofskirkja:
Allra heilaga messa í Hofskirkju sunnudaginn 3.nóvember kl. 15.
Kveikt verður á kertum fyrir þeim sem létust á síðasta ári.
Egilsstaðakirkja:
Sunnudagaskóli kl. 10.30. Umsjón hafa Þorgeir, Sándor, Guðný, Ragnheiður og fermingarbörn.
Minnum á hádegisbænastund í
Safnaðarheimili þriðjudaga kl. 12:00 og biblíuleshópinn á sama stað miðvikudaga kl. 17:00.
Vallaneskirkja:
Ljósamessa kl. 20:00. Allra heilagra messa – Látinna minnst og kertaljós tendruð í minningu og von. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson þjónar. Organisti: Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla syngur.
Áskirkja í Fellum:
3. nóvember messa kl 11.00. Kveikt á kertum í minningu látinna ástvina. Kór Áskirkju leiðir söng. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Prestur Sigríður Rún, fermingarbörn aðstoða í stundinni. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Hræðilega skemmtilegur sunnudagaskóli kl.11. Biblíusaga um ljósið, kirkjubrúður og söngur. Umsjón hafa Ísold Gná og leiðtogaefni. Myrkar veitingar eftir stundina.
Minningarstund kl. 18.00 í kirkjugarðinum á Seyðisfirði (færum stundina inn í kirkju ef viðrar illa). Kórinn leiðir okkur í söng undir stjórn Hlínar P. Behrens. Sr. Sigríður Rún leiðir stundina. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson. Kveikjum á kertum og leggjum á leiði látinna ástvina (við verðum með sérstakan stað fyrir þau sem ekki eru jarðsett í garðinum á Seyðisfirði).
