Kórastarf er hjartað í hverri kirkju og á kirkjudögum í Lindakirkju í lok ágúst voru kórsöngvarar heiðraðir fyrir sín störf.

Liljuhafar í Egilsstaðaprestakalli við afhendingu í messu þann 10. nóvember 2024:
Efri röð f.v. Sigurður Gylfi Björnsson, Ásgeir Þórhallsson, María Fanney Kristjánsdóttir, Friðrik Ingi Ingólfsson f.h. Helgu Hallbjargar Vigfúsdóttur, Gunnar Björnsson, Guðrún Ljósbrá Björnsdóttir, Þorvaldur Hjarðar, Guðrún Sóley Guðmundsdóttir, Magnús Karlsson, Björn Eiríksson, Guðný Hildigunnur Sigþórsdóttir, Jón Júlíusson, Auðbjörg Halldís Hrafnkelsdóttir, Magni Þórarinn Ragnarsson og Sigþrúður Sigurðardóttir.
Neðri röð f.v. Hugrún Sveinsdóttir, Gunnþóra Snæþórsdóttir, Sigríður Óladóttir (fremst), Jónína Zóphóníasdóttir, Þorgerður Jónsdóttir, Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir, Ragnhildur Billa Árnadóttir, Lilja Gísladóttir og Hrafnkell Björgvinsson.

Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir veitti Liljuna – tónlistarverðlaun þjóðkirkjunnar þeim kórfélögum sem sungið höfðu í 30 ár eða lengur í kirkjukórum. Fjölmenni var við þá hátíðlegu athöfn, en kórfólkið héðan að austan komust ekki öll til að vera viðstödd.

Það var því boðað til Lilju-messu í Egilsstaðakirkju 10. nóvember sl. Og þar var Liljan afhent til kórfélögum úr Egilsstaðaprestakalli, þ.e. nöfn allra handhafa lesin upp og þau sem ekki höfðu veitt viðtöku Lilju-skjali sínu í Lindakirkju fengu það afhent.

Mikill fjöldi kórafólks af Héraði, Seyðisfirði og Borgarfirði mætti til messu og tók þátt í samkór kirkjukóranna í prestakallinu.

Rúmlega fimmtíu kórfélagar prestakallsins voru handhafar Liljunnar, aðrir Liljuhafar voru fjarstaddir eða höfðu áður fengið Liljuna afhenta.

Einsöngur Auður Jónsdóttir, píanó Sándor Kerekes.