Mikið var um að vera á aðventu í Egilsstaðaprestakalli. Aðventukvöld hafa verið haldin í kirkjuseli Ássóknar í Fellum, Valþjófsstaðarkirkju, Vallaneskirkju, Egilsstaðakirkju, Bakkagerðiskirkju, Hjallastaðakirkju, Kirkjubæjarkirkju og í  Seyðisfjarðarkirkju. Mikil tónlist var í boði og kórmeðlimir undir stjórn organista sungu ljúfa jólatóna fyrir fólk. Ekki má gleyma nemendum tónlistaskóla sem hafa einnig tekið þátt  ásamt barnakórum kirknanna. Fermingarbörn hafa verið með ljósaþátt í flestum stundum og  ræðumenn hafa flutt jólahugvekju og jólaljóð og fleira uppbyggilegt í aðdragandi jóla. Í Egilsstaðakirkju var haldin aðventustund í samstarfi við félagsþjónustu Múlaþings. Þar tóku einstaklingar með fötlun virkan þátt ásamt sr. Guðnýju Hallgrímsdóttur presti fatlaðra sem einnig talaði á samveru um sorgina og jólin sem haldin var í kirkjuselinu í  Fellbæ. Á fyrsta sunnudegi í aðventu var haldin aðventuguðþjónusta fjölskyldunnar á Egilsstöðum þar sem barnakórin söng og eftir stundina var jólaföndur, kakó og piparkökur fyrir unga sem aldna. Einnig var haldið jólasálmakvöldi í Áskirkju í Fell í boði kórsins og organista. Einnig var fluttur söngleikurinn Týndu jólasveinarnir eftir Sándor Kerekes organista Egilsstaðakirkju sem að barnakórinn flutti fyrir almenning þann 20. desember ásamt barnahljómsveit.

Ein uppáhalds jólahefðin í Seyðisfjarðarkirkju er jólaball sunnudagaskólans sem var haldið í fyrsta sinn í fyrir jólin í fyrra og tókst svo vel að nú er það orðin hefð.

Stundin hófst í kirkjunni með bæn og jólasögu, svo var farið yfir í safnaðarheimilið þar sem sungið var og dansað í kringum jólatréð. Jónas Þór Jóhannsson lék á harmonikku, Sóley Guðmundsdóttir, Broddi b. Bjarnason og Einar Rafn Haraldsson leiddu sönginn. Rauðklæddir gestir komu með látum og hurðaskellum, en reyndust vera ósköp vænir og góðir og færðu börnunum gjafir og báðu eina ömmu að laga götótta ullarsokkar.

Aðventuhátíðir voru haldnar um aðra helgi í aðventu í Vallaneskirkju. Sameiginleg fyrir Vallanessókn og Þingmúlasókn og í Valþjófsstaðarkirkju. Á báðum stöðum var dýrmætt að hafa góða organista og söngstjóra og vel æfða kóra til að syngja og leiða almennan söng, þá Sándor Kerekes og Jón Ólaf Sigurðsson. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson, sem leysir af til áramóta í prestsþjónustu í Egilsstaðaprestakalli, leiddi þessar hátíðir með fjölbreyttri dagskrá.

Haldin var vökunótt fyrir unglinga í prestakallinu sem að hafa verið virkir í æskulýðastarfi kirkjunnar í vetur. 20 ungmenni tóku þátt og var yfir nóttina farið yfir spádóma um Jesú í gamla testamenntinu, boðun Maríu og þegar þær hittust Elísbet og María. Jólaguðspjallið var gefin góð skil og var hápunturinn þegar unglingarnir og leiðtogar stóðu úti við varðeld og var farið yfir fæðingu frelsarans og þegar englarnir birtust hirðunum. Nóttin endaði með frásögninni um flóttan til Egyptland. Voru það þreyttir en kátir unglingar sem fóru heim þann morgun.

Mikið líf er í kirkjustarfi á austurlandi og því ber að fagna. Yfir jólahátíðina verða 16 Guðþjónustur í prestakallinu.