Áskirkja í Fellum:

Messa kl. 14:00 þann 9. febrúar.
Prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, mun setja sr. Jarþrúði Árnadóttur inn í embætti prests í Egilsstaðaprestakalli.
Sr. Jarþrúður predikar og þjónar fyrir altari ásamt prófasti og sóknarpresti.
Kór Áskirkju syngur, organisti er Drífa Sigurðardóttir.
Fulltrúar sóknarnefndar Ássóknar lesa ritningarlestra.
Meðhjálpari er Bergsteinn Brynjólfsson.
Að athöfn lokinni býður sóknarnefnd Ássóknar til kaffisamsætis í Kirkjuselinu í Fellabæ.
Verið öll innilega velkomin!

Egilsstaðakirkja:

Sunnudagaskólinn í Safnaðarheimilinu kl. 10:30

Seyðisfjarðarkirkja: 

Sunnudaginn 9 .febrúar er messa kl. 11. Við brjótum við upp hið hefðbundna messuform og verðum með íhugunarmessu með áherslu á kristna íhugun, bæn og altarisgöngu. Kór Seyðisfjarðarkirkju undir stjórn Hlínar Behrens leiðir söng. Meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.

Norðfjarðarkirkja:

Sunnudaginn 9. febrúar,
kl. 11:00 Sunnudagaskóli
kl. 13:00 Guðsþjónusta – Liljan, viðurkenningar fyrir 30 ára kórastarf eða lengur verða veittar kórfólki úr Kór Norðfjarðarkirkju. Kór Norðfjarðarkirkju syngur undir stjórn Kaido Tani. Séra Benjamín Hrafn prédikar og þjónar.

Reyðarfjarðarkirkja:

Sunnudagur 9. febrúar,
Guðsþjónusta í Reyðarfjarðarkirkju kl. 20:00