Æskulýðssamband kirkjunnar á Austurlandi eða ÆSKA eru frjáls félagasamtök og starfa á Austurlandi undir merkjum Þjóðkirkju íslands. Markmið sambandsins eru að:
- Efla æskulýðsstarf fyrir fólk á aldrinum 6-30 ára á Austurlandi undir merkjum Þjóðkirkjunnar.
- Vera vettvangur starfsfólks og sjálfboðaliða í barna-og unglingastarfi og samfélag auk þess að stuðla að fræðslu.
- Standa að sameiginlegum verkefnum safnaða, auka samstarf og veita aðildarfélögum ráðgjöf um uppbyggingu og framkvæmd æskulýðsstarfs.
- Vera málsvari fyrir ungt fólk og kristilegt æskulýðsstarf innan starfssvæðis og utan, bæði á innlendum vettvangi og í erlendum samskiptum.
Stjórn ÆSKA 2022-2023
- Formaður: Ásmundur Máni Þorsteinsson, Egilsstöðum
- Varaformaður og ritari: Þuríður B. Árnadóttir Wiium, Vopnafirði
- Gjaldkeri: Dagbjört Lilja Björnsdóttir, Egilsstöðum
- Meðstjórnandi: Hólmfríður Ósk Þórisdóttir, Egilsstöðum
- Meðstjórnandi: Benjamín Hrafn Böðvarsson, Reyðarfirði
- Varamaður: Unnar Aðalsteinsson, Egilsstöðum
- Varamaður: Alfreð Örn Finnsson, Djúpavogi