Sumarbúðirnar á Eiðum
Sumarbúðir kirkjunnar á Eiðum eiga sér langa sögu. Aðdráttarafl svæðisins er mikið og við vatnið er sannkölluð ævintýraveröld sem þar sem fjöldi barna og unglinga unir sér við leik og starf á hverju sumri. Margir hafa bundist vináttuböndum við Eiðavatn og eignast góðar minningar þaðan, enda vilja flestir koma aftur ár eftir ár.


Barna- og unglingaflokkar
Í sumarbúðunum er boðið upp á ógleymanlega dvöl fyrir krakka fædda 2013 – 2019. Flokkar fyrir 7 – 9 ára börn, 8 – 10 ára börn, 8 – 12 ára börn og 12 -14 ára börn. Dagskrá hvers flokks er miðuð við þroska og getu barnanna. Sirkusflokkur er fyrir börn á aldrinum 8-12 ára, þar er lagt áhersla á tjáningu og skemmtun í einstöku umhverfi. Ævintýraflokkurinn er á sínum stað fyrir 12 – 14 ára unglinga sem vilja upplifa öðruvísi og spennandi sumarbúðaævintýri.
Mikið af alls konar skemmtilegri og þroskandi afþreyingu í boði:
- Fáránleikar
- Frjálsar íþróttir
- Sköpun
- Kvöldvökur
- Útivera
- Kirkja
- Siglingar á vatninu
- og margt fleira
Flokkatafla 2026
| Flokkur | Dags | Aldur | Fæðingarár | Verð | Verð sé greitt fyrir 8. apríl | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. fl | 10. – 14. júní | 7 – 9 ára | 2016 – 2018 | ATH. 4 dagar | ||
| 2. fl | 15. – 19. júní | 8 – 10 ára | 2015- 2017 | |||
| 3. fl | 22. – 26. júní | 8 – 12 ára | 2013 – 2017 | Sirkusflokkur | ||
| 4. fl | 29. júní – 3. júlí | 12 – 14 ára | 2011-2013 | Ævintýraflokkur |
Systkinaafsláttur: 10%
Staðfesta þarf skráningu með greiðslu. Greiðsluseðill er sendur inn á heimabanka forráðamanns 1. Þar koma fram upplýsingar um gjalddaga og eindag. Sé hætt við þátttöku í sumarbúðunum 5 dögum fyrir flokkinn eða síðar er 80% af gjaldinu endurgreitt.
Viltu styrkja sumarbúðirnar?
Styrktarreikningur sumarbúðanna er:
0166-05-061616 – kt. 441185-0659
Markmið sumarbúðanna við Eiðavatn er að bjóða börnum og unglingum ógleymanlega sumardvöl þar sem kristin lífsgildi eru höfð að leiðarljósi.
Í sumarbúðunum starfar öflugur hópur leiðtoga með reynslu og þjálfun í barna- og æskulýðsstarfi. Allir starfsmenn sækja námskeið í skyndihjálp, brunavörnum o.fl. Lögð er áhersla á öryggi við bátsferðir.
Sumarbúðirnar eru í fallegu umhverfi við Eiðavatn, u.þ.b. 18 km frá Egilsstöðum. Þjóðkirkjan hefur starfrækt sumarbúðir á Eiðum á hverju sumri frá 1968, þar af frá 1992 í byggingu Kirkjumiðstöðvar Austurlands. Kirkjumiðstöðin er sjálfseignarstofnun á vegum safnaðanna á Austurlandi.




Innritun
Skráning fer fram rafrænt HÉR og hefst 11. mars á hádegi.
Sumarbúðarsími er: 892-3890
Einnig er hægt að senda email á sumarbudirkma@gmail.com