Hér fyrir neðan eru upplýsingar um starfsmenn sumarbúðanna sumarið 2025.

Tómas
Ég heiti Tómas og mun vera aðstoðarsumarbúðarstjóri. Ég er að klára diplómanám í ferðamálafræði og ætla í íþróttafræði í Háskóla Íslands í haust. Uppáhalds liturinn minn er blár. Uppáhalds ávöxturinn er epli og leyndi hæfileikinn minn er að ég get látið augun á mér titra.

Vigdís Grace
Ég heiti Vigdís, er 19 ára og kem frá Reykjavík. Ég starfa sem æskulýðsleiðtogi í Egilsstaðakirkju og hef mikla reynslu að vinnu með börnum. Ég er námi við Menntaskólanum á Egilsstöðum. Eftir stúdentspróf ætla ég að fara í guðfræði.

Stefanía Þórdís
Ég heiti Stefanía Þórdís, ég er í menntaskólanum á Egilsstöðum og vinn sem skíðaþjálfari á veturnar. Mér finnst epli svakalega góð og uppáhalds liturinn minn er fjólublár. Mínir leyndu hæfileikar eru að ég er mjög góð í sundi.

Hjördís María
Ég heiti Hjördís, er 18 ára og ný útskrifuð úr menntaskólanum á Egilsstöðum. Ég er mjög listræn manneskja og með svakalegt ímyndunarafl, þannig áhugamálin er mjög fjölbreytt. Ég elska jarðaber, perur og ananas. Uppáhalds liturinn minn er bleikur og ég skipti á milli þess að nota hægri og vinstri hendi.

Eva Lind
Ég heiti Eva Lind og er nemandi í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Ég þjálfaði börn á skíðum síðasta vetur og hef gaman af því að vinna með krökkum. Uppáhalds liturinn minn er bleikur, og mér finnst gaman að dansa og hlusta á tónlist.

Bjarki Páll
Ég heiti Bjarki Páll og var að klára annað árið í Verzló. Uppáhaldsliturinn minn er gull. Uppáhaldsávöxturinn minn er vatnsmelóna og leyndi hæfileikinn minn er sá að ég get brett upp á auglokin.

Berglind
Ég heiti Berglind en alltaf kölluð Bella. Ég starfa sem deildarstjóri á leikskólanum á Egilsstöðum. Uppáhalds liturinn minn er gulur og uppáhalds ávöxturinn minn er jaraðarber. Minn leyndi hæfileiki er að ég hef mjög góða ráðskonutakta! Ég verð í ævintýraflokki.

Elva Dögg
Ég heiti Elva Dögg. Uppáhaldslituinn minn er túrkis blár og uppáhalds ávöxturinn jarðarber. Minn leyndihæfileiki er svo leyndur að hann hefur ekki enn komið fram. Ég verð í ævintýraflokki.

Hanna Sólveig
Ég heiti Hanna og er að útskrifast úr 10. bekk í Egilsstaðaskóla. Ég vinn sem þjálfari hjá fimleikadeild Hattar þar sem ég hef verið að vinna síðustu 2 ár. Uppáhalds ávöxturinn minn er ástaraldin og uppáhalds liturinn minn er bleikur. Ég myndi klárlega segja að leyndi hæfileikinn minn sé að syngja.

Sonal Sif
Ég heiti Sonal Sif og er að klára Réttarholtsskóla. Ég er búin að sækja um Kvennaskólan í Reykjavík fyrir næsta haust. Ég er ekki mikið fyrir ávexti en ég elska Chilli og allt sem er mjög sterkt. Blár er uppáhaldsliturinn minn.

Bríet Krista
Ég heiti Bríet Krista og er að útskrifast úr Egilsstaðarskóla og stefni á að fara í Menntaskólann á Egilsstöðum. Uppáhaldsliturinn minn er fjólublár og uppáhaldsávöxturinn minn er mangó. Minn leyndi hæfileiki er að ég get hreyft á mér eyrun!